til hamingju med afmaelid saeta snull
Til hamingju með afmælið Áslaug skvís ;)
Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Áslaug!
Hún á afmæli í dag.

Til hamingju með daginn og hafðu það gott í dag.
Og hér er gjöfin þín. 

kv. Tinna María og Saumaklúbburinn
Saumó á miðvikudaginn
Kv. Berglind
Laugardagurinn

Sýningin byrjar kl 20:00 þannig að það er um að gera að mæta TÍMANLEGA svo við fáum nú matinn okkar á réttum tíma og það verði ekkert stress

Og kannski láta hinar vita ef einhverri seinkar svo hægt sé redda því með því að panta fyrir hana eða eitthvað.
Tékkið á gelunni sem er í gula bolnum hehehehe

Við erum orðnar svo pró eftir að hafa horft á svo margar seríur af ANTM

Þetta er hörmulegur svipur


Kveðja Mæja

Fúlar á móti

Við vorum eitthvað búnar að tala um að fara út að borða fyrir sýninguna og ef það er enn stemmning fyrir því mæli ég með að við pöntum borð sem fyrst.
Þetta er mjög vinsæll tími að fara út að borða og sumir staðir bókast mánuð fyrir fram og við erum nokkrar
Hvert langar ykkur að fara að broða???

Breyttur saumó!

Fanney
Enn eitt eurovision partýið!! :)
Ég er búin að vera haldin rosalegum valkvíða um hvað maður eigi að gera eða hvar maður eigi að vera næsta á laugardaginn, rosalega margt að ske!
En ég ákvað semsagt að lokum að mæta í partý til Evu vinkonu, nánar tiltekið heima hjá mér! :) Hún er búin að bjóða alls kyns hressu liði, byrgja sig upp af snakki, ídýfum og alls kyns gúmmelað og fylla i-podinn af mis góðum júró slögurum!
Ykkur er öllum boðið og makar eru meira en velkomnir líka :)
Svona hljóðar lýsingin hennar Evu:
Eurovision aðdáendur og ekki aðdáendur safnist saman!
Nú er loksins komið að því, Júró 2009 í landi Rússanna. Þau okkar sem ekki komast til Moskvu fá það næst besta...Júróvision partý í höllinni minni! :)
Keppnin byrjar kl 19:00 og mæli ég með því að fólk mæti aðeins fyrr, með veitingar í poka því grillið verður að sjálfsögðu tindrað. Þeir sem vilja frekar panta pizzu mega það að sjálfsögðu og svo eru það alltaf hinir sem vilja borða heima sem gera það þá.
Sjónvarpið verður svo stillt á hæsta styrk, júródrykkjuleikir verða grafnir upp, ipodinn fylltur af misskemmtilegum júrólögum og pleisið sjænað hátt og lágt!
Makar eru að sjálfsögðu velkomnir með sem og einn og einn skemmtilegur vinur!
Eurovision kveðjur og áfram Ísland!!!! :)
Áslaug júrónörri
Það er komið að því!! Eurovision Árshátíð!!!
Er ekki bara málið að byrja daginn snemma!! hittast uppúr hádeginu með bakkelsi upp í skautahöll, skella okkur í smá læraleikfimi á skautasvellinu eftir hádegismatinn og svo geta þeir sem viljað skellt sér í sund í smá afslöppun eftirá.
Því næst förum við heim til okkar og gerum okkur klárar fyrir kvöldið. Svo var planið að hittast heima hjá Mæju klukkan hálf sjö ekki seinna því Eurovision byrjar klukkan sjö. Ég var að spá, við getum pantað okkur einhvern ljúffengan mat heim til mæju því kannski frá ban tai ;) eða ef fólk vill frekar elda einhvern léttan rétt saman :) bara endilega komið með hugmyndir hérna... en við meigum ekki velta okkur of mikið upp úr þessu því þetta er bara næstu helgi!! :O
Svo legg ég til að þið kynnið ykkur Eurovisionlögin á www.eurovision.tv því það verður geggjaður leikur í gangi
Hver og einn velur sér eitt land til þess að halda með og í hvert skipti sem það land fær stig verður maður að taka sopa af drykknum síðnum... og ef landið mans fær 10 eða 12 stig þá verður maður að taka skot :) ( við splæsum bara saman í 2 skotflöskur)
Hvernig er stemningin fyrir þessu ??
Kv. Fríða Eurovision fan... PS. áfram Tyrkland
Grease !!!
Hverjar hafa áhuga að fara á söngleikin Grease í júní 
Miðinn kostar 3750 kr.
Ef við ætlum að fara þá verðum við að bóka fljótlega svo við getum fengið sæti
hlið við hlið.
Hvaða dagsetning hentar ykkur best?
12.júní föstudagur klukkan 20:00
13. júní laugardagur klukkan 20:00
26. júní föstudagur klukkan 20:00
27. júní laugardagur klukkan 20:00
Hægt er að fara aðra daga en þá byrjar sýningin klukkan 16:00, er ekki
skemmtilegra að fara klukkan 20:00 þá getum við farið út að borða á undan 
Kveðja Mæja 

